Grænfáninn

Skólar á grænni grein (Eco-Schools) eru alþjóðlegt verkefni sem menntar milljónir nemenda í 67 löndum víðsvegar um heim í sjálfbærni og umhverfisvernd. Verkefnið byggir á lýðræðismenntun og getu til aðgerða.

Skólar á grænni grein fylgja sjö skrefa ferli sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Ef skólinn nær markmiðum sínum fær hann að flagga grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.

Verkefnið hefur víðtæk áhrif og taka skólar ábyrga afstöðu í málum sem snerta umhverfið. Með því að innleiða raunhæfar aðgerðir og vinna á markvissan hátt að sjálfbærni í skólanum sýnir reynslan að skólar geta sparað talsvert í rekstri.

Kársnesskóla hlotnaðist sá heiður að fá Grænfánan í maí 2018 en þar með er verkefninu ekki lokið því þörf er á að halda áfram að gera vel í umhverfismálum því við ætlum okkar að halda fánanum sem lengst.

Hér má finna frekari upplýsingar um þetta verkefni