Samvinna barnanna vegna

Til foreldra/forsjáraðila nemenda.
Miðvikudaginn 10. maí kl. 17:30-18:45 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila í Kópavogi með Heimili og skóla.
Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan barnsins míns og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar? Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á árangur í leik og námi.
Við hvetjum öll til að mæta á fundinn.
Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi:
Kópavogur, miðvikudagur 10. maí: https://forms.gle/xs1oUh9oxHisy1Wg8
Posted in Fréttaflokkur.