Föstudaginn 8. maí s.l. fór fram í Fífunni árlegt knattspyrnumót 7. bekkja grunnskóla Kópavogs.
Þetta árið var mótið skipulagt og haldið af íþróttakennurum Kársnesskóla.
Gaman er að segja frá því að stúlkurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið með afgerandi hætti.
Drengirnir stóðu sig einnig með prýði þrátt fyrir að hafa ekki náð á pall í þetta skiptið.
Allir voru skólanum til sóma og getum við hér á Kársnesinu verið stolt af okkar fólki.
Þessi viðburður vekur jafnan mikla athygli nemenda í 7. árgangi sem og þeirra í 6. árgangi sem eru strax farin að hlakka til næsta árs.

