Á baráttudegi gegn einelti sem var í nóvember unnu nemendur í 10.bekk Kársnesskóla verkefni þar sem þau bjuggu til Vináttuvagn – leiðin til hamingju. Hver nemandi skrifaði á rautt hjarta eða stjörnu jákvæðan eiginleika í fari fólks.
StrætóBS fékk upplýsingar um þetta verkefni og núna í desember keyrir Vináttuvagninn um götur borgarinnar og bæjanna í kring, skreyttur þessum fallegu orðum sem börnin okkar skrifuðu.
Sérstaklega skemmtilegt verkefni og líka gaman að sjá að verkefnið var í heild sinni sett á vagninn. Húrra f yrir vináttunni, Gylfa Frey kennara, nemendum í 10.bekk og Strætó
![](https://karsnesskoli.is/wp-content/uploads/sites/8/2020/12/st11-rotated.jpg)
![](https://karsnesskoli.is/wp-content/uploads/sites/8/2020/12/File_005-768x1024.jpeg)
![](https://karsnesskoli.is/wp-content/uploads/sites/8/2020/12/File_006-768x1024.jpeg)
![](https://karsnesskoli.is/wp-content/uploads/sites/8/2020/12/File_007-1024x768.jpeg)
![](https://karsnesskoli.is/wp-content/uploads/sites/8/2020/12/File_001-1024x768.jpeg)