Góðgerðardagurinn

Góðgerðardagurinn var haldinn hátíðlegur síðastliðinn fimmtudag og erum við sérlega stolt af árangri og þátttöku foreldra, starfsfólks og barna á þessum degi.  Í dag kom til okkar Anna Björk Eðvarðsdóttir formaður Hringsins og tók við söfnunarfénu frá nemendum í 7.bekk sem afhentu Barnaspítalasjóði Hringsins 770.000.  Þessi upphæð er sú mesta sem hefur safnast á þessum degi til þessa og við erum að springa úr stolti hér í Kársnesskóla.

Á viðurkenningarskjali sem Hringurinn afhenti skólanum stóð: ,,Nemendur Kársnesskóla héldu Góðgerðadag í skólanum, til styrktar Barnaspítalasjóði Hringsins.  Með einstökum krafti og dugnaði nemenda, safnaðist mjög vegleg peningaupphæð á Góðgerðardaginn.  Hjartans þakkir frá okkur Hringskonum, gangi ykkur öllum vel í því sem þið takið ykkur fyrir hendur. Framtíðin er ykkar“

Kærar þakkir til ykkar sem lögðuð ykkar að mörkum og við erum strax farin að hlakka til næsta Góðgerðardags.

 

Posted in Fréttaflokkur.