Skólasetning og fleira

Skólasetning í Kársnesskóla verður miðvikudaginn 23. ágúst og eru tímasetningar eftirfarandi:

09:00 – 8., 9., og 10. bekkur – Í sal skólans

10.00 – 5. – 7. bekkur  – Í sal skólans

11.00 – 3. – 4. .bekkur – Í sal skólans

13.00 – 2. bekkur  – Í sal skólans

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 24. ágúst.

Nemendur og foreldrar nemenda í 1.bekk verða boðuðí viðtöl til umsjónarkennara dagana 23. og 24. ágúst og þeir nemendur byrja í skólanum samkvæmt stundaskrá 25. ágúst.

Markmið okkar í Kársnesskóla er alltaf að hafa skólastarfið gott og öruggt fyrir börnin okkar og það gerum við í samvinnu við heimilin 😊

Posted in Fréttaflokkur.