Stóra upplestrarkeppnin fór fram í gær, fimmtudaginn 5. mars, við hátíðlega stemningu og frábæran undirbúning nemenda. Keppnin er árleg uppskeruhátíð 7. bekkinga um allt land og miðar að því að efla vandaðan upplestur, framsögn og áhuga á íslenskri tungu. Verkefnið hefst ár hvert á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, og lýkur í mars með vali á hæfileikaríkum fulltrúum hvers sveitarfélags/svæðis
Vinningshafar 2026
Í keppninni í ár stóðu nemendur sig með mikilli prýði og var erfitt fyrir dómnefnd að velja úr hópi efnilegra lesara. Að lokum hlutu eftirfarandi nemendur verðlaun:
- Hrafnhildur Rós Jónsdóttir – sigurvegari
- Þórunn Obba Gunnarsdóttir – sigurvegari
- Njörður Freyr Jónsson – varamaður
Nemendurnir sýndu framúrskarandi lesskilning, framsögn og túlkun og eiga öll hrós skilið

Frá hægri: Þórunn Obba, Njörður Freyr og Hrafnhildur Rós
fyrir vandaðan og fallegan flutning.
Um keppnina
Stóra upplestrarkeppnin hefur verið fastur liður í skólastarfi víða um land frá árinu 1996 og er liður í að skapa jákvæða lestrar- og framsagnarmenningu. Hún er opin öllum nemendum í 7. bekk og fer fram í nokkrum áföngum innan hvers skóla og síðar á héraðsvísu.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu keppninnar:
👉 https://upplestur.is/