Hjólareglur

Hjólareglur

Gilda fyrir reiðhjól, rafmagnshjól og vespur

1. Nemendur mega koma á hjóli í skólann frá og með vori í 2. bekk. Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri.

2. Allir nemendur sem koma á hjóli í skólann eiga að vera með hjálm. 79. grein umferðarlaga: „Barn yngra en 16 ára skal nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar“.

3. Nemendur mega ekki vera á hjóli í frímínútum eða í Frístund.

4. Á skólatíma eiga hjól að vera læst í eða við hjólagrindur. Skólinn ber ekki ábyrgð og hjólum. Foreldrar/forráðamenn geta kært þjófnað og/eða skemmdarverk til lögreglu.

Posted in Fréttaflokkur.