Kynningarbæklingur fagráðs hefur verið endurútgefinn og þýddur á ensku og pólsku. Fagráð eineltismála veitir ráðgjöf í eineltismálum og hægt er að vísa málum til fagráðs ef ekki tekst að finna lausn á eineltismálum innan skóla eða sveitarfélags eða ef sömu aðilar sýna aðgerðaleysi í málinu. Fagráðið veitir þá ráðgefandi álit á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga sem því berast.
Á vefsíðu Menntamálastofnunar má nálgast eftirfarandi upplýsingar um eineltismál:
Kynningarmyndband um eineltismál
Kynningarbæklingur fagráðs á íslensku
Kynningarbæklingur fagráðs á ensku
Kynningarbæklingur fagráðs á pólsku
Upplýsingar um fagráð eineltismála.
Upplýsingar um eineltismál gegneinelti.is Upplýsingarnar eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn, ungmenni, foreldra og fagfólk. Fjallað er m.a. um hvert sé best að leita eftir upplýsingum ef grunur leikur á að um einelti sé að ræða. Einnig er fjallað um forvarnir, félagslega vellíðan, skólabrag, almenn samskipti, samskipti á netinu, úrræði og gefnar leiðbeiningar við gerð verkferils/eineltisáætlunar.
Tengil inn á þetta efni má einnig finna á heimasíðunni okkar (sjá mynd)