Samkvæmt skóladagatali var áætlað að vera með fjölgreindarleika í skólanum á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku.
Vegna veirufaraldurs og eðlis þessa frábæru leika höfum við ákveðið að fresta þeim um óákveðinn tíma. Á fjölgreindarleikum blöndum við öllum árgöngum saman og hóparnir fara á milli allra svæða í skólanum. Við teljum það ekki óhætt eins og staðan er í dag.
Vonumst þó til að geta hafið leika eftir áramótin – svona eftir því sem aðstæður leyfa.