Árleg Söngkeppni Félkó, Félagsmiðstöðvar Kópavogs, fór fram í Salnum miðvikudaginn 25. febrúar og var stemningin frábær eins og ávallt. Nemandi okkar í Kársnesskóla, Lovísa Gísladóttir í 9. bekk, stóð sig einstaklega vel og hlaut annað sæti með fallegum flutningi sínum á laginu There Are Worse Things I Could Do úr söngleiknum Grease.
Við í Kársnesskóla erum afar stolt af frammistöðu Lovísu og óskum henni innilega til hamingju með árangurinn. Lovísa mun ásamt sigurvegara keppninnar, Freyju Bjarnadóttur, taka þátt í Söngkeppni Samfés sem fram fer þann 9. maí í Laugardalshöll og verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV.

