Þann 15.september hófst Svakalega lestrarkeppnin!📖
Nemendur í 5.-7. bekk í Kársnesskóla ætlum að taka þátt í Svakalegu lestrarkeppninni, sem er landskeppni fyrir nemendur í 1.–7. bekk á vegum List fyrir alla.
Tími: 15. september – 15. október
Tilgangur: Lesa sem mest og safna saman lestrarmínútum.
Hvað telst með? Allur lestur á bókum (nema námsbókum). Það er líka leyfilegt að hlusta á hljóðbækur.
Skólinn sem safnar flestum lestrarmínútum sigrar og hreppir titilinn „Svakalegasti lestrarskóli landsins“ ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun. Að auki fær sá skóli sem les mest í hverjum landshluta sérstaka viðurkenningu.
Sigurvegari verður tilkynntur á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, í sjónvarpsþættinum Málæði á RÚV.
Svakalega lestrarkeppnin er fyrst og fremst sameiginlegt og skemmtilegt átak hjá skólanum til að efla lestur. Fyrir suma nemendur er svona áskorun mikil hvatning og eykur lestraráhuga en aðrir geta tekið þátt á sínum forsendum eða einfaldlega haldið áfram að lesa eins og venjulega. Markmiðið er ekki keppni milli nemenda heldur að hvetja hvern og einn til að lesa aðeins meira en hann hefði annars gert.
