Stóra upplestrarkeppnin haldin í gær – glæsileg frammistaða nemenda

Stóra upplestrarkeppnin fór fram í gær, fimmtudaginn 5. mars, við hátíðlega stemningu og frábæran undirbúning nemenda. Keppnin er árleg uppskeruhátíð 7. bekkinga um allt land og miðar að því að efla vandaðan upplestur, framsögn og áhuga á íslenskri tungu. Verkefnið hefst ár hvert á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, og lýkur í mars með vali á hæfileikaríkum fulltrúum hvers sveitarfélags/svæðis

Vinningshafar 2026

Í keppninni í ár stóðu nemendur sig með mikilli prýði og var erfitt fyrir dómnefnd að velja úr hópi efnilegra lesara. Að lokum hlutu eftirfarandi nemendur verðlaun:

  • Hrafnhildur Rós Jónsdóttir – sigurvegari
  • Þórunn Obba Gunnarsdóttir – sigurvegari
  • Njörður Freyr Jónsson – varamaður

Nemendurnir sýndu framúrskarandi lesskilning, framsögn og túlkun og eiga öll hrós skilið

Frá hægri: Þórunn Obba, Njörður Freyr og Hrafnhildur Rós

fyrir vandaðan og fallegan flutning.

Um keppnina

Stóra upplestrarkeppnin hefur verið fastur liður í skólastarfi víða um land frá árinu 1996 og er liður í að skapa jákvæða lestrar- og framsagnarmenningu. Hún er opin öllum nemendum í 7. bekk og fer fram í nokkrum áföngum innan hvers skóla og síðar á héraðsvísu.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu keppninnar:
👉 https://upplestur.is/

Posted in Fréttaflokkur.