Góðgerðardagur Kársnesskóla 2025

Þann 15.maí héldum við í sjöunda sinn Góðgerðardag hér í Kársnesskóla. Góðgerðardagurinn er fjáröflunarverkefni til styrktar góðu málefni – börn hjálpa börnum. Viðburðurinn er í samstarfi við foreldrafélag Kársnesskóla á vorhátíð skólans. Markmið verkefnisins eru að nemendur fái tækifæri til að taka þátt í raunverulegu verkefni sem skiptir máli í samfélaginu og í samfélagi þjóða. Þau fái tækifæri til að láta gott af sér leiða og finni fyrir samtakamætti alls skólasamfélagsins þar sem nemendur, kennarar, starfsfólk og foreldrar vinna saman.  Það er einnig mikilvægur þáttur í verkefninu að nemendur kynnist allskonar hjálparstarfi.

Nemendur í 7.bekk eru í umsjónarhlutverki og í ár völdu þau að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Faðir Bryndísar Klöru, Birgir Karl Óskarsson ásamt Guðna Má Harðarsyni presti og stjórnarmeðlimir komu svo í skólann, kynntu sjóðinn og fyrir hvað hann stendur fyrir nemendum sem tóku vel á móti þeim og hlustuðu af mikilli athygli á hvað þeir höfðu að segja. Það má með sanni segja að við sem hlýddum á þá tala um Bryndísi Klöru og hvernig allir í samfélaginu þurfa að standa saman að því að vernda börn gegn ofbeldi, vorum öll snortin.

Góðgerðardagurinn gekk stórkostlega vel og aldrei hefur safnast eins há upphæð.  2024 vorum við verulega roggin þegar við töldum upp úr kössunum og við rétt rufum milljón króna múrinn, en í ár söfnuðust 1.273.881

Foreldrar Bryndísar Klöru sem komu sjálf á Góðgerðardaginn og í dag til að taka á móti upphæðinni, sögðust hrærð og þakklát fyrir þetta yndislega framtak og þökkuðu kærlega fyrir.  Ruth kennari og verkefnastýra verkefnisins í ár afhenti þeim ávísunina fyrir hönd barnanna og skólans.

Takk, allir sem komuð að þessum degi á einn eða annan hátt, nú höldum við áfram að vera riddarar kærleikans.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Posted in Fréttaflokkur.