Þema

Þema á elsta stigi

Fimmtu hverju viku er stundaskrá brotin upp og í stað „hefðbundinna“ bóklegra kennslustunda vinna nemendur þemaverkefni í þeim tímum þar sem allar bóklegar námsgreinar liggja undir auk þess sem lykilhæfni vegur þungt. Alls verða sex þemavikur á skólaárinu, þrjár á hvorri önn.

Þemaverkefnin eru öll samin af kennurum á elsta stigi þar sem unnuð er út frá hugmyndafræði PBL (Project Based Learning/verkefnamiðað nám) að hluta eða í heild. Í verkefnamiðuðu námi eru 21. aldar færniþættir eins og gagnrýnin hugsun, lausnaleit, frumkvæði, ábyrgð og samvinna meginþræðir í verkefnum sem byggja á raunverulegum viðfangsefnum sem nemendur rannsaka og tengja við. Markmið með þema er að efla þessa færniþætti og gera nemandann að virkum þátttakanda í samstarfi við aðra nemendur auk þess að efla nemendalýðræði sem gengur út á að nemendur hafi frelsi og val til ákvarðana um eigið nám innan marka námskrár.

Þemaverkefnin miða öll að því að kveikja áhuga nemenda á náminu, efla metnað þeirra og ýta undir aukinn námsárangur. Þema gerir að auki kröfu um sjálfstæð vinnubrögð nemenda, sjálfstæð vinnubrögð, skapandi hugsun og nálgun bæði nemenda og kennara og loks samþættingu námsgreina.