Náms- og starfsráðgjafi Kársnesskóla er Ásthildur Guðlaugsdóttir og starfar hún á öllum skólastigum.
Viðtal við náms- og starfsráðgjafa stendur öllum nemendum skólans til boða. Nemendur og forráðamenn þeirra geta óskað eftir viðtali hvenær sem er en auk þess geta umsjónarkennarar, sérkennarar, deildarstjórar og nemendaverndarráð vísað nemendum til námsráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafi er málsvari nemenda og trúnaðarmaður og aðstoðar nemendur við að leita lausna á sínum málum.
Viðtalstímar eru alla daga eftir samkomulagi bæði fyrir nemendur og forráðamenn.
Nemendur og forráðamenn þeirra eru hvattir til að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa
Námsráðgjafi er bundinn trúnaðarskyldu varðandi allar upplýsingar sem hann fær um nemendur og/eða nemendahópa.
Sími: 441-4607 netfang: [email protected]
Helstu verkefni námsráðgjafa:
- Að aðstoða nemendur og ráðleggja varðandi námstækni, námsaðferðir, lestraraðferðir, prófundirbúning, skipulagningu tíma og áætlanagerð
- Að veita nemendum stuðning og ráðgjöf vegna tímabundinna erfiðleika og áfalla
- Að veita nemendum persónulega ráðgjöf og stuðning vegna erfiðleika í einkalífi
- Að vinna að eineltismálum samkvæmt eineltisáætlun skólans og í samstarfi við umsjónarkennara, deildarstjóra og annað starfsfólk eftir því sem við á
- Að miðla upplýsingum til nemenda og forráðamanna um möguleika og framboð á námi og störfum að grunnskóla loknum
- Að aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf
- Að skipuleggja náms- og starfsfræðslu í skólanum
- Að sitja í nemendaverndarráði skólans og vinna í nánu samstarfi við umsjónarkennara og annað starfslið skólans auk skólasálfræðings og annarra sérfræðinga er koma að málefnum nemenda
- Að sitja í áfalla- og eineltisteymi skólans og vinna eftir áætlunum skólans þegar þörf er á
Upplýsingar um framhaldsskóla
Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þeir eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs vegna fræðsluskyldu við ólögráða nemendur.
Allir nemendur eiga rétt á námi við sitt hæfi í samræmi við óskir og hæfni. Framhaldsskólar bjóða nú upp á:
- Um það bil 100 námsbrautir,
- þar af 87 starfsnámsbrautir.
- Námsbrautirnar eru ólíkar að lengd og inntaki en námslengd getur verið frá einni til tíu anna.
- Af öllum námsbrautum eru leiðir til frekara náms.
Gagnlegir hlekkir
- Ýmsar upplýsingar sem tengjast grunnskólunum
Menntamálastofnun – innritun í framhaldsskóla
- Innritun í framhaldssk
- Stærðfræðivefur með verkefnum fyrir öll skólastig
- Vefur sem inniheldur kennsluefni og verkefni
F1orvarnir og heilbrigðismál:
- Fræðsla um heilbrigt líferni og forvarnir
- Óháður fræðsluvefur um heilbrigðismál
- Síða þróuð af fagfólki til aðstoðar foreldrum, kennurum og öðrum sem starfa með börnum við að byggja upp sterkari sjálfsmynd og líkamsímynd
- Vefsetur fræðslumiðstöðvar í fíknivörnum
- Fræðsluvefur Geðhjálpar um geðraskanir
- Fræðslu- og forvarnarvefur um geðheilsu
- Sálfræðivefur með ýmsum upplýsingum
- Fræðsla, forvarnir og ráðgjöf til fjölskyldna og einstaklinga, vegna samskiptavanda og stuðningur við ungmenni í neyslu.
- Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að sætt hafi kynferðislegri áreitni eða ofbeldi
- Síða um sérstöðu stjúpfjölskyldna
- Verkefni sem felst í því að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum
- Ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir
- Landsamtök til stuðnings börnum og foreldrum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.
- Greining þroska- og hegðunarfrávika
- Aðstoð fyrir lesblinda, Davis ráðgjöf o.fl.
Upplýsingar um störf:
- Upplýsingar um nám og störf
- Upplýsingar um framhaldsskóla og ýmislegt annað áhugavert
- Viðtöl við fólk sem vinnur við hin ýmsu störf
- Upplýsingar um störf
- Upplýsingar um nám og störf í iðngreinum
- Myndbönd um hin ýmsu störf innan spítalans