Um skólann

Kársnesskóli er með 400 nemendur í 5.-10. bekk.  Starfsmenn eru um 65, þar af eru kennarar tæplega 40 talsins. Starfsemi skólans er á þremur stöðum:

● v/Vallargerði: 7. – 10. bekkur eru í aðalbyggingu skólans. 5. og 6. bekkur eru í lausum kennslustofum.

● v/Holtagerði er íþróttahús en íþróttir eru einnig kenndar í Fagralundi og Smáranum.

● v/Borgarholtsbraut er Sundlaug Kópavogs

Gildi Kársnesskóla eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja og hefur starfsfólk það að meginmarkmiði að útskrifa ánægða og vel menntaða nemendur með sterka sjálfsmynd sem eru tilbúnir til að takast á við lífið.

Skólabyggingin er opin frá kl. 7:45 alla morgna og lausar kennslustofur frá kl. 8:00.
Skrifstofa skólans er opin:
mánudaga – fimmtudaga frá kl. 7:45 – 15:30
föstudaga frá kl. 7:45 – 14:30