Eins og fram kemur í grunnskólalögum bera foreldrar ábyrgð á uppeldi barna sinna og bera ábyrgð á að þau innritist í skóla þegar þau komast á skólaskyldualdur og sæki skóla. Foreldrar gæta hagsmuna barna sinna og eiga að stuðla að því að þau stundi nám sitt. Foreldrar fylgist með námsframvindu barna sinna í samvinnu við þau og kennara þeirra og eiga að greina skólanum frá þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á námsframvindu, ástundun og hegðun. Foreldrar fái jafnframt tækifæri til að taka þátt í námi barna sinna, svo og í skólastarfinu almennt. Foreldrar skulu hafa samráð við skólann um skólagöngu barna sinna, fylgjast með og styðja við skólagöngu þeirra og námsframvindu og stuðla að því að börnin mæti úthvíld í skólann og fylgi skólareglum. (Aðalnámskrá grunnskóla bls. 70)
Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla. Mikilvægt er að þessir hópar vinni vel saman að mótun þessa samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Til þess að það gangi vel þarf að ræða reglulega um áherslur og koma sér saman um meginviðmið. (Aðalnámskrá grunnskóla bls. 71)
Gert er ráð fyrir að foreldrar taki þátt í mótun skólasamfélagsins og vinni að því með stjórnendum skóla, kennurum og öðrum starfsmönnum skóla að koma markmiðum skólastarfs í framkvæmd og taki höndum saman til að tryggja sem best uppeldisskilyrði barna og almenna velferð þeirra. Öflugt foreldrastarf og sterk samstaða um grundvallarviðmið er besta forvörnin gegn hvers kyns vá, t.d. neyslu fíkniefna og óæskilegri hegðun. Ef foreldrar nemenda í bekk eða skóla ná að stilla saman strengi um meginviðmiðanir í uppeldismálum aukast líkur á árangri í skólastarfinu, þ.e. námsárangri, almennri velferð nemenda og forvörnum. (Aðalnámskrá grunnskóla bls. 72)